Hótaði að kasta sér í sjóinn

Kv. Guðbjörg
Kv. Guðbjörg mbl.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í Sundahöfn skömmu fyrir miðnætti en hann hafði hótað að stökkva í sjóinn er afskipti voru höfð af honum.

Um útlending er að ræða en Skógarfoss var að leggja úr höfn er lögregla kom á vettvang en hælisleitendur hafa ítrekað reynt að laumast um borð í fraktskip sem eru á leið frá landi undanfarin ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert