Lætur af skrifum fyrir Fréttablaðið

Þorsteinn Pálsson.
Þorsteinn Pálsson. mbl.is/RAX

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, hefur ákveðið að fella niður skrif af Kögunarhóli í Fréttablaðinu. Hann telur að þau vatnaskil hafi orðið hjá 365 miðlum að undanförnu sem geri honum það óhjákvæmilegt.

Þetta kemur fram í Kjarnanum og einnig að Þorsteinn hafi tilkynnt yfirmönnum 365 miðla þetta í dag. Þorsteinn hefur skrifað pistla í laugardagsútgáfu Fréttablaðsins um árabil.

Hann segir í bréfi til yfirmanna 365 miðla að hann taki ekki afstöðu til nýrra yfirmanna á ritstjórn blaðsins en í framhaldi af fráhvarfi forstjóra félagsins fyrr í sumar og nú ritstjóra, sem tengsl hans við blaðið hafi helst byggst á, telji hann að þau vatnaskil hafi orðið sem geri þetta óhjákvæmilegt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert