Fylgjast með úr öryggri fjarlægð

Vísindamenn sem verið hafa við rannsóknir skammt frá eldgosinu í Holuhrauni, fylgjast með því í öruggri fjarlægð, samkvæmt upplýsingum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Áætlað er að TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar fljúgi yfir gosstöðvarnar um klukkan 09:30 í fyrramálið 29. ágúst. ISAVIA hefur lýst yfir nýju hættusvæði frá jörðu upp í 18000 feta hæð (sjá meðfylgjandi mynd). Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið fullmönnuð vegna eldgossins og unnið er á neyðarstigi.

Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið fullmönnuð vegna eldgossins. Á þriðja tug manna er nú statt í samhæfingarmiðstöðinni. Þar er fylgst með nýjustu fréttum af eldgosinu og upplýsinga aflað

Rétt eftir miðnætti hófst gos milli Dyngjujökuls og Öskju, nyrst í Holuhrauni. Um er að ræða 100 metra sprungugos á sprungu í norðaustur - suðvestur átt. Gosið virðist rólegt og þunnfljótandi hraun rennur frá sprungunni.

Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð er nú fullmönnuð. Myndin er tekin í …
Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð er nú fullmönnuð. Myndin er tekin í nótt. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð er nú fullmönnuð. Myndin er tekin í …
Samhæfingarmiðstöðin í Skógarhlíð er nú fullmönnuð. Myndin er tekin í nótt. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Úr samhæfingarmiðstöðinni í nótt.
Úr samhæfingarmiðstöðinni í nótt. mbl.is
Frá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð í nótt.
Frá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð í nótt. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert