Hlaut djúpan skurð eftir slípirokk

mbl.is/Hjörtur

Vinnuslys varð í austurbæ Reykjavíkur í dag þegar maður þegar maður fékk slípirokk í sig með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut djúpan skurð á hægri kálfa að innanverðu.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um atvikið kl. 11:30 í dag. Maðurinn var að störfum á svölum á fjórðu hæð fjölbýlishúss. Hann var að skera steypu með slípirokk, en hann festist og slóst úr höndunum á manninum með fyrrgreindum afleiðingum.

Maðurinn var fluttur á slysdeild til aðhlynningar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert