Bílvelta við Dettifossveg eystri

Lögreglan á Húsavík var kölluð til vegna bílveltu sem varð á eystri veginum að Dettifossi í kvöld. Erlendir ferðamenn voru í bílnum og slasaðist enginn, sem er mikil mildi, því bíllinn er að sögn lögreglunnar gjörónýtur. Talið er að bílbelti hafi komið í veg fyrir að ekki fór verr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert