Lést í umferðarslysi

mbl.is

Karlmaður sem lést í umferðarslysi sem varð á Hafnarvegi, skammt norðan við Höfn í Hornafirði, fimmtudaginn 28. ágúst sl. hét Halldór Guðmundsson. Hann var 58 ára gamall, fæddur 29. nóvember 1955.

Halldór var til heimilis að Kópavogsbraut 93 í Kópavogi. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur uppkomin börn og eitt barnabarn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert