Vill upplýsingar um alla fjölmiðla

Fjölmiðlanefnd hefur ákveðið að kalla eftir upplýsingum um starfsemi og eignarhald allra skráðra og leyfisskyldra fjölmiðla í ljósi „opinberrar umræðu um málefni fjölmiðla og hræringa á fjölmiðlamarkaði að undanförnu“. Fram kemur í fréttatilkynningu að bréf þess efnis verði send út á næstu dögum. Í einhverjum tilfellum hafi skort á nákvæmni og uppfærslu slíkra upplýsinga.

„Þá hefur fjölmiðlanefnd jafnframt ákveðið að óska á ný eftir upplýsingum frá öllum fjölmiðlum um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði og hvort breytingar hafi orðið á þeim. Fjölmiðlanefnd bendir á að reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði þeirra starfsmanna sem sinna fréttum og fréttatengdu efni ber að endurskoða árlega, tilkynna fjölmiðlanefnd þegar endurskoðun hefur farið fram og senda nefndinni nýja útgáfu af reglunum til staðfestingar hafi breytingar verið gerðar,“ segir ennfremur.

Þá vekur fjölmiðlanefnd athygli á því að verði eigendaskipti að fjölmiðlaveitu beri seljanda og kaupanda að tilkynna fjölmiðlanefnd um þau innan tveggja virkra daga frá gerð kaupsamnings. „Þá skal stjórn félags sem stundar fjölmiðlun senda fjölmiðlanefnd hlutaskrá félagsins innan fjögurra virkra daga frá því aðalfundur var haldinn. Farið verður fram á að framangreindar upplýsingar berist fjölmiðlanefnd fyrir miðjan mánuð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert