Listir og vísindi efli sjálfbæra þróun

Listaháskóli Íslands.
Listaháskóli Íslands. mbl.is/Brynjar Gauti

Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið að veita um 26 milljónir króna til nýs verkefnis, KONNECT, þar sem listir og vísindi koma saman til að efla sjálfbæra þróun. Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og Listaháskóli Íslands hafa forystu um verkefnið, sem nær til allra norrænu ríkjanna. Stærsti hluti styrksins kemur frá nýju áherslusviði ráðherranefndarinnar sem styrkir þverfræðileg verkefni um sjálfbærni.

KONNECT er ætlað að auka skilning almennings á hinum miklu umhverfisvandamálum sem blasa við um allan heim og munu hafa mjög alvarlegar afleiðingar ef ekkert verður að gert. Það nýstárlega við verkefnið er samvinna um sjálfbærni milli listaháskóla og ungra listmanna alls staðar á Norðurlöndum og framúrskarandi vísindamanna á sviði umhverfis og sjálfbærni.

„Það er oft vandasamt fyrir raunvísindamenn að koma niðurstöðum rannsókna sinna á framfæri við almenning því strangar reglur gilda um hvernig vísindamenn geta tjáð sig. Listamönnum eru hins vegar engin takmörk sett og þeir kunna öðrum fremur að finna nýja fleti og breyta hugarfari út frá forsendum listrænnar sköpunar.

Í  fjögurra daga vinnubúðum munu listnemar og vísindamenn vinna saman, skiptast á upplýsingum og skoðunum og móta hugmyndir að nýjum verkum sem varpa ljósi á alls kyns mikilvæga þætti sjálfbærni og umhverfis. Áhersla verður lögð á að styrkja framleiðslu valinna verkefna svo þau fái slagkraft sem fyrst.
Fyrstu vinnubúðirnar verða haldnar á Kolstöðum í Borgarfirði haustið 2015 og síðan annars staðar á Norðurlöndum, þar sem helstu listaháskólar í hverju landi taka þátt í KONNECT,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert