Lögðu áherslu á samstöðu meirihlutans

Björn Blöndal, Dagur B. Eggertsson, Sóley Tómasdóttir, Halldór Auðar Svansson …
Björn Blöndal, Dagur B. Eggertsson, Sóley Tómasdóttir, Halldór Auðar Svansson og Halldór Halldórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrsti borgarstjórnarfundur vetrarins hófst klukkan 14 í dag. Fyrsta mál á dagskrá var umræða um samstarfsyfirlýsingu Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tók fyrstur til máls og sagðist ánægður með samstarfið, og að borgarstjórnarflokkarnir stefndu að sama markmiði. Hann las upp yfirlýsinguna, þar sem fyrsta setningin var svohljóðandi: „Við sem myndum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur komum úr ólíkum áttum en stefnum að sama markmiði.“

Borgarstjóri talaði um friðsæla og frjálslynda borg þar sem aukið lýðræði og opnari stjórnsýsla væru lykiláherslumál. Hann sagði gagnsæi og aukið íbúalýðræði megináherslu kjörtímabilsins.

Borgarfulltrúar meirihluta virtust sammála um að samstarfið lofaði góðu og að stefnan væri mótuð. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sagði það hafa komið henni á óvart hversu litlar málamiðlanir meirihlutinn hafi þurft að gera. Hún sagði það besta hafa verið tekið úr stefnuskrám flokkanna sem að meirihlutanum standa. „Þetta er yfirveguð lýsing á þeim verkefnum sem við teljum mikilvægust,“ sagði hún.

S. Björn Blöndal, borgarfulltrúi Bjartrar framtíðar sagði eftirvæntingu í loftinu og hug í fólki. Hann sagði mikilvægt að lýðræðismál væru sett á oddinn. „Lýðræði deyr þegar við hættum að reyna að eiga við það,“ sagði hann. Þá sagði hann yfirlýsinguna metnaðarfulla, og ef vel til tækist að framfylgja stefnumálum hennar gætu borgarfulltrúar gengið ansi sáttir frá borði. „Ég bind miklar vonir við að eiga gott og farsælt samstarf.“

Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi Pírata tók undir þetta og sagðist jafnframt hæstánægður með gagnsæi og lýðræðiseflingu í forgrunni.

Borgarfulltrúar minnihluta ósammála ýmsum þáttum

Halldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins var ósammála ýmsum þáttum í yfirlýsingunni. Hann talaði um einkavæðingu og að hana skorti í sáttmálann. Hann sagðist vera á móti því að meginreglan væri sú að borgin sæi um allt.

Í yfirlýsingunni er talað um að 2500-3000 búsetuíbúðir fari í uppbyggingu á næstu misserum. Þá er talað um að borgin muni sjá um leikskólaþjónustu og frístundastarf. Halldór talaði um að hann sæi fyrir sér að borgin kæmi inn á samkeppnissvið á leigumarkaði og sagði það áhyggjuefni. „Það þarf að gæta þess að borgin fari ekki í uppbyggingu á íbúðum í samkeppni við einkamarkaðinn,“ sagði hann.

Halldór benti á að lítið sem ekkert væri talað um rekstur borgarinnar í yfirlýsingunni, sem hann sagði lykilatriði ef það ætti að vera mögulegt að hrinda öllum verkefnum í framkvæmd. Halldór sagðist ekki sammála þessu „ótrúlega forstokkaða ákvæði um að borgin eigi að reka allt.“

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar, var einnig ósammála ýmsum þáttum yfirlýsingarinnar. Hún sagðist sammála því að gagnsæi væri mikilvægt, en setti spurningarmerki við það hvort embætti erindreka gagnsæis væri nauðsynlegt.

Sveinbjörg setti einnig spurningarmerki við það hvernig borgarstjórnin ætlaði að auka traust, og sagðist ekki geta séð hvernig það yrði gert. Þá sagði hún skorta í yfirlýsinguna hvernig borgarstjórn ætli að sinna hlutverki og skyldum gagnvart öldruðum, og einnig hver framtíð Reykjavíkurflugvallar yrði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert