IKEA innkallar GUNGGUNG-rólur

GUNGGUNG róla frá IKEA
GUNGGUNG róla frá IKEA

IKEA hvetur þá viðskiptavini sem eiga GUNGGUNG-barnarólu til að taka hana tafarlaust úr notkun og skila henni í IKEA-verslunina þar sem hún verður endurgreidd að fullu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá IKEA.

IKEA hafa borist tilkynningar um að festingar rólunnar standist ekki öryggiskröfur IKEA og geti valdið slysum.

„Við þróum vörur sem eiga að efla sköpunargáfu barna og náttúrulega þörf þeirra fyrir hreyfingu. Börn hugsa ekki um öryggi þegar þau leika sér þannig að við þurfum að gera það við þróun varanna. Við höfum það að leiðarljósi hjá IKEA að selja aðeins vörur sem við myndum gefa okkar eigin börnum. Samt sem áður, þrátt fyrir ströng öryggispróf, verða okkur stundum á mistök. Þess vegna hefur verið ákveðið að innkalla GUNGGUNG-róluna til að koma í veg fyrir fleiri tilvik,“ segir Cindy Andersen, viðskiptastjóri barnavara hjá IKEA, í fréttatilkynningu.

GUNGGUNG-barnarólan hefur verið seld á öllum IKEA-mörkuðum frá 1. apríl 2014.

Hægt er að skila GUNGGUNG-rólunni í IKEA-verslunina og fá hana endurgreidda að fullu. Ekki er nauðsynlegt að sýna kvittun til að fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri í síma 520 2500 og á www.IKEA.is.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert