Ökumaður dottaði við stýrið

mbl.is/​Krist­inn Freyr Jör­unds­son

Lögreglan á Sauðárkróki var kölluð á vettvang umferðaslyss við bæinn Borgarfell í Lýtingsstaðahreppi í morgun þar sem að ökumaður hafði lent utanvegar. Ekki er vitað um tildrög slyssins en að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki leikur grunur á að ökumaður bifreiðarinnar hafi dottað við stýrið með þeim afleiðingum að bíllinn fór af veginum.

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Meiðsli ökumannsins eru ókunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert