Engir áverkar eftir „spark“ Krumma

Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, Krummi, gengur fyrir aftan Vilhjálm H. …
Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, Krummi, gengur fyrir aftan Vilhjálm H. Vilhjálmsson, verjanda sinn, þegar málið var þingfest. mbl.is/Þórður

Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn Oddi Hrafni Stefáni Björgvinssyni sem ákærður er fyrir brot gegn valdsstjórninni fer fram í Héraðsdómi Reykjaness 6. október nk. Þetta var ákveðið við fyrirtöku í málinu í morgun. Oddur Hrafn, betur þekktur sem Krummi í Mínus, hafnar alfarið sakargiftum.

Í ákærunni segir að Krummi hafi ráðist með ofbeldi á lögreglumann við skyldustörf við Snorrabraut í Reykjavík 12. júní 2013. Í ákærunni segir að hann hafi sparkað í hægri fótlegg lögreglumannsins.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Krumma, sagði eftir fyrirtökuna í morgun að málið væri allt hið undarlegasta. Þannig hafi umræddur lögreglumaður enga áverka fengið eftir hið meinta spark og ekkert hafi verið rætt við vitni á staðnum. Málið hafi verið afgreitt með samhljóða skýrslum lögreglumannanna sem skrifaðar hafi verið á nánast sömu mínútu.

Frétt mbl.is: Krummi neitar sök

Frétt mbl.is: Krummi ákærður fyrir að sparka í lögreglumann

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert