Vígja snjóflóðavarnir í Bolungarvík

Hér sést hluti af varnargörðunum.
Hér sést hluti af varnargörðunum.

Á laugardaginn verður vígsluathöfn vegna snjóflóðavarna undir Traðarhyrnu í Bolungarvík. Athöfnin verður undir miðjum stærri varnargarðinum af tveimur, þar sem komið hefur verið fyrir upplýsingaskilti um mannvirkin. Við vígsluna mun m.a. Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra flytja ávarp auk þess sem garðarnir verða formlega vígðir og þeim gefin nöfn.

Samkvæmt tilkynningu hófust framkvæmdir við garðana í júní 2008.

„Um um er að ræða annarsvegar 710 metra langan garð sem nær 22 metra hæð þar sem hann er hæstur og hinsvegar 240 metra langan garð sem fer mest í u.þ.b. 12 metra hæð. Ofan við garðana eru 8 keilur sem hver um sig er um 40 metra löng og 12 metrar á hæð. Í garðana og keilurnar fóru meira en 400 þúsund rúmmetrar af jarðvegi og grjóti. Garðarnir eru þegar orðnir vinsælt útivistarsvæði, en skemmtilegar gönguleiðir liggja um garðana og svæðið umhverfis,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Athöfnin hefst klukkan 15 og er öllum opin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert