Féll úr mastri og fótbrotnaði

mbl.is/Hjörtur

Maður slasaðist á fæti eftir að hafa fallið niður úr mastri í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Hann hafði klifrað upp í mastrið sem er um 2,5 metrar á hæð, þegar óhappið varð. Var talið að hann hefði fótbrotnað og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans.

Þá slasaðist kona sem rann til og skall með andlitið á stein. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert