Færeyski fréttavefurinn jn.fo greinir frá því að grænlenska skipið Tasiilaq hafi verið meinað að landa afla sínum á Þórshöfn á Íslandi í gær. Skýringin er sögð vera sú að skipið hafi veitt í grænlenskri lögsögu.
Skipið sigldi því til Færeyja með aflann, um 700 tonn af frystri síld, hátt í 700 tonn sem verða nýtt í fiskimjöl og um 200 tonn af ferskri síld. Tasiilaq kom til Kollafjarðar í Færeyjum í nótt.
Í frétt jn.fo kemur fram að skipið sé í eigu Royal Greenland Pelagic og að Íslendingar eigi 10% hlut í félaginu.
Skemmst er að minnast færeyska skipsins Næraberg sem lagðist að bryggju í Reykjavík í lok september. Vél skipsins bilaði og var því ákveðið að taka á móti skipinu.
Lögum samkvæmt er erlendum skipum, sem stunda veiðar eða vinnslu á afla úr sameiginlegum nytjastofnum sem veiðast bæði innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi og sem íslensk stjórnvöld hafa ekki gert milliríkjasamning um nýtingu á óheimilt að koma til íslenskra hafna og fá þau heldur ekki þjónustu í höfnunum.
Íslendingar og Grænlendingar hafi gert sérstakt samkomulag sín á milli sem felst í því að grænlensk skip fá að landa tilteknu magni af makríl, veiddum í Grænlandi, hér á landi.