Gæslan beitir íhlutunarrétti

Flutningaskipið Green Freezer á strandstað.
Flutningaskipið Green Freezer á strandstað. Landhelgisgæslan/Sigurður Ásgrímsson

Varðskipið Þór mun í birtingu hefja björgunaraðgerðir með það að markmiði að losa flutningaskipið Green Freezer af strandstað við Fáskrúðsfjörð og draga skipið í kjölfarið á öruggt svæði. Þetta kemur fram á vefsíðu Landhelgisgæslunnar.

„Landhelgisgæslan tók í kvöld ákvörðun um að beita íhlutunarrétti, í samræmi við lög um verndun hafs og strandar vegna flutningaskipsins Green Freezer sem strandaði í Fáskrúðsfirði á miðvikudagskvöld. Ákvörðunin var tekin að höfðu samráði við Umhverfisstofnun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert