Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa lokið við að afhenda 100 spjaldtölvur í leikskóla bæjarins. Spjaldtölvurnar voru afhentar með fjölmörgum smáforritum, öppum, sem nýtast í kennslu á leikskólastigi.
Kópvogvsbær segir í tilkynningu, að spjaldtölvur hafi verið notaðar með góðum árangri í kennslu í leikskólum Kópavogs. Þær hafi nýst í sérkennslu, tungumálakennslu og við úrlausn einfaldra sem flókinna verkefna fyrir börn á leikskólaaldri. Með fleiri spjaldtölvum fjölgi möguleikum á notkun tækjanna.
„Afhending spjaldtölvanna helst í hendur við uppsetningu þráðlauss nets í leik- og grunnskólum Kópavogs. Nettengin leikskólanna í Kópavogi, sem eru 19 talsins, var stækkuð þrefalt árið 2013 og er uppsetningu þráðlauss nets nú lokið í öllum nema tveimur leikskólum Kópavogs. Þráðlaust net eykur mjög á notkunarmöguleika spjaldtölva og fartölva í skólastarfi.
Í fyrra voru auk þess allar borðtölvur leikskólanna uppfærðar í vinnurýmum kennara og hjá stjórnendum. Um er að ræða samtals 100 öflugar borð- og fartölvur.
Kostnaður við uppsetningu á þráðlausu neti og kaup á búnaði fyrir leikskóla eru um 30 milljónir króna á þessu ári. Í þeirri upphæð er einnig kostnaður við lagfæringar á lögnum sem reyndust nauðsynlegur undanfari uppsetningarinnar,“ segir í tilkynningu.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, afhenti leikskólastjórum bæjarins spjaldtölvurnar og 20 fartölvur á leikskólanum Efstahjalla. Ármann segir í tilkynningu að afhendingin marki kaflaskil í leikskólastarfi í Kópavogi.