Með tæplega eitt kíló af hassi

Maðurinn var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Maðurinn var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Sigurgeir

Karlmaður um þrítugt hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi eftir að hann var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með tæplega eitt kíló af hassi  í fórum sínum.

Maðurinn var að koma frá Kaupmannahöfn á leið til Grænlands, þegar tollverðir stöðvuðu hann fyrr í mánuðinum. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og fór lögreglan á Suðurnesjum með rannsókn málsins. Maðurinn hefur nú hlotið dóm, eins og að ofan greinir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert