30 skjálftar í nótt

Hraunrennslið við Holuhraun.
Hraunrennslið við Holuhraun. mbl.is/RAX

30 skjálftar hafa mælst í norðvesturhluta Vatnajökuls frá miðnætti, þar af 10 á Bárðarbungusvæðinu og aðrir 15 á norðurhluta kvikuganganna undir svæðinu. Sterkasti skjálftinn var 5,1 að stærð og varð hann skömmu eftir klukkan eitt í nótt. 

Lítilsháttar skjálftavirkni mældist einnig í Tungnafellsjökli, Öskju og Herðubreiðartöglum. 

Gosið í Holuhrauni heldur áfram með svipuðum krafti og undanfarna daga samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert