Green Freezer komið að bryggju

Green Freezer við bryggju á Fáskrúðsfirði.
Green Freezer við bryggju á Fáskrúðsfirði. Mbl.is/Albert Kemp

Flutningaskipið Green Freezer er nú komið að bryggju í Fáskrúðsfirði en varðskipið Þór dró skipið af strandstað. Ekki liggur fyrir hvenær skipið fer úr firðinum. 

Olíu var dælt úr skipinu til að létta það. Þegar það hafði verið dregið af strandstað var það skoðað úti á firðinum, olíu dælt aftur á skipið og var það því næst dregið til hafnar. 

Hér má sjá skipið við hlið varðskipsins Þór við bryggju …
Hér má sjá skipið við hlið varðskipsins Þór við bryggju á Fáskrúðsfirði í dag. Mbl.is/Albert Kemp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert