Réðust á dyravörð

mbl.is/Júlíus

Tveir menn voru handteknir í nótt eftir að hafa ráðist á dyravörð stuttu eftir að þeim var neitað um inngöngu á bar í Austurstræti. Þeir reyndu að ryðjast inn og við það var dyravörður sleginn í andlitið. Mennirnir, sem voru erlendir, voru í annarlegu ástandi og gátu þeir ekki gert grein fyrir sér þegar lögreglan mætti á staðinn, og voru án skilríkja. Því voru þeir vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn máls. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert