Gunnar Bragi ræddi landgræðslu í New York

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra eru …
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra eru nú staddir í New York þar sem þeir eru þátttakendur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. mbl.is/Kristinn

Gunnar Bragi Sveinsson tók í dag þátt í ráðherrafundi um sjálfbæra landnýtingu sem Ísland stóð fyrir ásamt Katar, Marokkó og Þýskalandi. Fundurinn fór fram í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna þar sem sérstök áhersla er á meðal annars á loftslagsbreytingar.

Í ræðu sinni fór Gunnar Bragi yfir mikilvægi landgræðslu fyrir heiminn og þekkingu Íslands í þeim efnum. Síðastliðin 100 ár hafi Ísland svo náð miklum árangri í landgræðslu og deili þeirri þekkingu sem hefur áunnist með öðrum þjóðum meðal annars gegnum landgræðsluskóla háskóla SÞ á Íslandi, að því er segir í tilkynningu sem utanríkisráðuneytið sendi.

Ráðherrann sagði að landeyðing og eyðurmerkurmyndun væri mest þar sem mannfólkinu fjölgar hraðast sem aftur leiddi til rýrari matvælaframleiðslu á þeim svæðum. Á hverjum áratugi breytast 1,2 milljón ferkílómetra af landi í eyðimörk. Það er fjórum sinnum stærð Þýskalands. Þetta væri því mikilvægt málefni sem snerti á fæðuöryggi og loftlagsbreytingum.

Monique Barbut, framkvæmdastýra Eyðurmerkursamnings Sameinuðu Þjóðanna, stýrði fundinum. Fram kom í máli hennar að árið 2013 hafi 13 milljón manna farið á vergang vegna náttúruhamfara og þar sé þurrkur stærsti áhrifavaldurinn. Landgræðsla skipti því miklu.

Ísland ásamt Namibíu stofnaði fyrir ári síðan vinahóp landa sem vilja vinna gegn landeyðingu og eyðurmerkurmyndun og hefur látið til sín taka í undirbúningi nýrra þróunarmarkmiða, m.a. sendu utanríkisráðherrar Íslands og Namibíu bréf til aðalframkvæmdastjóra SÞ til að vekja athygli hans á þessu máli, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert