Lögreglan stöðvaði 300 ökumenn

Lögreglan stendur reglulega fyrir umferðareftirlit til að kanna ástand ökumanna.
Lögreglan stendur reglulega fyrir umferðareftirlit til að kanna ástand ökumanna. mbl.is/Júlíus

Hátt í þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu neytt áfengis en voru undir refsimörkum.

Auk þessa voru níu aðrir ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í umdæminu um helgina að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert