Tekið á móti 24 flóttamönnum

Meðal þeirra sem koma hingað til Íslands eru sýrlenskir flóttamenn …
Meðal þeirra sem koma hingað til Íslands eru sýrlenskir flóttamenn sem koma hingað frá Tyrklandi. AFP

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, undirrituðu í gær samning um þau verkefni sem Rauði krossinn mun annast vegna móttöku flóttafólks á þessu ári.

Fram kemur í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu, að samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar Íslands verði tekið á móti þremur hópum flóttafólks á þessu ári. Hafnarfjarðarbær tók að sér móttöku sex manna fjölskyldu frá Afganistan sem þegar er komin til landsins.

Einnig verður tekið á móti hópi hinsegin flóttafólks frá fjórum löndum og sýrlenskum flóttamönnum sem koma hingað frá Tyrklandi. Reykjavíkurborg mun annast móttöku þessarra hópa. Í hópunum þremur eru samtals 24 einstaklingar; þrettán fullorðnir og ellefu börn, að því er segir í tilkynningu.

„Þegar tekið er á móti hópum flóttafólks gerir velferðarráðuneytið annars vegar samning við sveitarfélagið þar sem fólkið mun setjast að um ýsmsa aðstoð og stuðning því til handa og hins vegar við Rauða krossinn á Íslandi sem einnig kemur að því að veita fólkinu liðsinni. Stærsta verkefni Rauða krossins er að skipuleggja störf þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem koma að málum, þ.á.m. eru stuðningsfjölskyldur sem hafa reynst flóttafólki sem kemur hingað til lands afar mikilvægar,“ segir orðrétt í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert