Flugmennirnir brugðust ekki rétt við

mbl.is

Viðbrögð flugmanna voru ekki rétt að mati rannsóknarnefndar samgönguslysa þegar kennsluflugvél ofreis í október 2012.

Þann 20. október 2012 fór kennari ásamt nemanda í kennsluflug á fisinu TF-303 frá fisflugvellinum Sléttunni á Reykjanesi. Eftir um þriggja mínútna flug ofreis fisið í um 700 feta hæð yfir sjávarmáli. Því næst snérist fisið á hægri vænginn og fór í spuna til jarðar. Fisið brotlenti og létust báðir mennirnir sem um borð voru.

Skipt hafði verið um eldsneytisleiðslur fissins skömmu fyrir slysið. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur líklegt að við þá framkvæmd hafi gat myndast á nýju eldsneytisleiðsluna þar sem hún gekk í gegnum eldvarnarvegg á milli stjórnklefa og hreyfils. RNSA telur að eldsneyti hafi annað hvort lekið út um gatið á eldsneytisleiðslunni eða loft komist þar inn. Það hafi hindrað eðlilegt eldsneytisstreymi til hreyfilsins og valdið gangtruflunum með þeim afleiðingum að hreyfillinn missti afl.

RNSA telur því að ekki hafi verið um eiginlega hreyfilbilun að ræða, heldur truflun á gangi hreyfils af völdum lofts og/eða eldsneytisþurrðar hreyfils vegna gats á eldsneytisleiðslu í eldsneytisdreifikerfi á milli eldsneytisgeyma og hreyfils, nánar tiltekið við eldvegg fissins.

Gögn rannsóknarinnar benda til þess að eftir að fisið ofreis hafi nefi þess verið haldið uppi og bröttu ofrisi þannig viðhaldið með háu áfallshorni. Það er mat RNSA að viðbrögð flugmannanna við ofrisi og spuna hafi ekki verið rétt.

„Það er mat RNSA að viðbrögð flugmannana við gangtruflun í hreyfli (aflmissi) hafi verið röng. Það er einnig mat RNSA að viðbrögð flugmannana við ofrisi hafi ekki verið rétt og fisið því farið í spuna. Ekki er hægt að útiloka að reynsluleysi fisflugskennarans á þessa tegund fisa hafi orðið til þess að hann vanmat ofriseiginleika fissins, með þeim afleiðingum að hann greip ekki inn áður en fisið fór í bratt ofris. Ennfremur gæti það hafa verið meðverkandi þáttur við ofrisið að fisið var yfir leyfilegum hámarksmassa,“ segir í skýrslu nefndarinnar.

Skýrslan í heild

Frétt mbl.is: Tveir létust í flugslysinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert