Sló lögreglumann í andlitið

Lögreglustöðin í Vestmannaeyjum
Lögreglustöðin í Vestmannaeyjum mbl.is/GSH

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði afskipti af manni í annarlegu ástandi inni á einum veitingastað bæjarins um miðja síðustu viku. Hann brást hins vegar illa við afskiptum lögreglu og sló einn af lögreglumönnunum í andlitið. 

Maðurinn var í framhaldi af því handtekinn og vistaður í fangageymslu þar til hann róaðist. Lögreglumanninum varð ekki meint af en lögreglan lítur það alvarlegum augum þegar ráðist er að lögreglu enda menn að sinna skyldustörfum sínum og eiga sjálfsagðan rétt á að koma óskaddaðir frá vinnu sinni, samkvæmt dagbók lögreglunnar.

Í vikunni var lögreglu tilkynnt að gaskút hefði verið stolið þar sem hann var við heimili í Eyjum. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki.  

Ósátt við að vera rekin út 

Aðfaranótt föstudags var lögreglu tilkynnt að rúða hefði verið brotin í útidyrahurð að íbúð í fjölbýlishúsi hér í bæ. Þarna hafði kona, sem var gestkomandi í íbúðinni, verið ósátt við að vera vísað út og lét skap sitt bitna á rúðunni með því að sparka í hana þannig að rúðan brotnaði.

Laust fyrir hádegi hinn 25. september sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys um borð í Ársæli ÁR-66 þar sem þeir voru að veiðum í Háadýpi. Þarna hafði einn skipverjanna slasast þegar verið var að vinna við að laga niðurleggjarann. Skipið kom í land í Vestmannaeyjum um hádegisbil og var maðurinn fluttur á Sjúkrahús Vestmannaeyja til aðhlynningar en hann hafði skorist á neðrivör sem þurfti að sauma.

Einn ökumaður var stöðvaður fyrir of hraðan akstur í vikunni en hann mældist á 72 km/klst. á Dalvegi en þar er hámarkshraði 50 km/klst. Sektin nam kr. 15.000. Þá var einn ökumaður sektaður fyrir að leggja ökutæki sínu ólöglega.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu í liðinni viku en um var að ræða minniháttar óhapp og engin slys á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert