Byggðasjónarmið ráðherra standast ekki

Fiskistofa er til húsa að Dalshrauni 1 í Hafnarfirði.
Fiskistofa er til húsa að Dalshrauni 1 í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sem nú stendur yfir var samþykkt að skora á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurð Inga Jóhannsson og ríkisstjórnina, að draga til baka ákvörðun sína um að flytja Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar þar sem engin málefnaleg rök fyrir flutningnum hafa komið fram.

Bæjarráð Hafnarfjarðar mótmælti 1. júlí þeim áformum ráðherra að flytja starfsemi Fiskistofu úr Hafnarfirði.  Þegar ákvörðun um flutning opinberra stofnana, og þá starfa á milli landshluta, er tekin verður að gera þá kröfu að fyrir liggi málefnaleg rök.   Svo er ekki um að ræða í þessu tilviki.

Þau byggðasjónarmið sem vísað hefur verið til af hálfu ráðherra standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar hafa aflað sér.

Samkvæmt tölulegum upplýsingum er Akureyri ekki í vörn hvað íbúafjölgun varðar, miðað við landsmeðaltal, og aðrar tölulegar upplýsingar gefa ekki sérstaklega til kynna að bæjarfélagið þurfi sérstakan stuðning ríkisins í þessum efnum, segir í frétt frá Hafnarfjarðarbæ.

  • Atvinnuleysi í Hafnarfirði var að meðaltali árið 2013 4,7% samanborið við 3,5% á Akureyri.
  • Atvinnulausir í Hafnarfirði sem eru með háskólapróf voru 118 en 62 á Akureyri í ágúst 2014. 
  • Stöðugildum hjá ríkinu fækkaði í Hafnarfirði um 126,8 á milli áranna 2007 og 2013, eða um 20,4%. Á sama tíma fækkaði þeim um 57,2 stöðugildi á Akureyri, eða sem nemur 5,4,%.
  • Stöðugildi á vegum ríkisins á Akureyri voru 1.004 árið 2013 samanborið við 495 stöðugildi í Hafnarfirði.
  • Verði af flutningi Fiskistofu til Akureyrar mun fækka um 57,5 stöðugildi til viðbótar við þau 126,8 störf sem fækkaði um milli áranna 2007 og 2013 í Hafnarfirði. 

Frekari samantekt og upplýsingar eru á www.hafnarfjordur.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert