Umferðarslys skammt frá Leifsstöð

Sjúkrabílar og lögregla á vettvangi slyssins.
Sjúkrabílar og lögregla á vettvangi slyssins. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Umferðarslys varð á Reykjanesbraut skammt frá Leifsstöð um kl. 14.30 í dag. Sjúkrabílar og lögreglubílar eru komnir á staðinn. Slysið varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Aðalbrautar í Reykjanesbæ.

Lögreglan á Suðurnesjum getur ekki gefið frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu. 

Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja voru þrír sjúkrabílar og tækjabíll sendir á staðinn. 

Blaðamaður mbl.is sem er á staðnum segir minniháttar umferðartafir á Reykjanesbraut vegna slyssins. Hann segir að um þriggja bíla árekstur sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert