Gunnar Nelson er kominn til Stokkhólms, þar sem hann mun berjast við Rick "The Horror" Story á laugardagskvöldið.
Gunnar er að sjálfsögðu umkringdur Mjölnismönnum, sem birtu meðfylgjandi myndband á Youtube. Í myndbandinu sést Gunnar leika allskonar listir í mjög litlu MMA-búri, þar sem hann fer meðal annars í einhvers konar köngulóarbrú, auk þess sem hann bregður á leik með þjálfara sínum með sverðum úr frauðplasti.