Ráðherra falli frá flutningi Fiskistofu

Halldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Halldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Ómar Óskarsson

Á fundi borgarráðs í morgun lögðu þeir Halldór Halldórsson og Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, fram ályktunartillögu um flutning Fiskistofu.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvetja til „vandaðrar stjórnsýslu af hálfu ríkisins, ekki síst þegar fjallað er um mál sem varða stóra hópa starfsfólks opinberra stofnana á borð við Fiskistofu. Ákvörðun um flutning Fiskistofu er dæmi um óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar. Enda virðist niðurstaðan verða sú að fæst ef nokkuð af starfsfólkinu flytur með og ríkissjóður verður fyrir óþarfa kostnaði. Ráðherra er hvattur til þess að falla frá þessum áformum.“

Þá er það skoðun borgarfulltrúanna að með sama hætti sé erfitt að sjá hvernig ný stofnun sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur tilkynnt um á erindi út á land.„Þörfin fyrir starfsemi stofnunar sem hefur með barnavernd, réttindagæslu fatlaðs fólks o.fl. er mest á höfuðborgarsvæðinu og á hún því að vera þar.“

Við mótun byggðastefnu er kominn tími til að tekið verði tillit til höfuðborgarinnar sem mikilvægs útvarðar byggðar á Íslandi, segir í ályktun Sjálfstæðismanna í borgarráði. „Stefnumótun í byggðamálum þarf að taka mið af breyttum aðstæðum og þörfum íbúa landsins og viðurkenna mikilvægi höfuðborgarinnar.“

Tillögunni var frestað á fundi borgarráðs í dag og verður vísað til næsta borgarráðsfundar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert