Vefurinn MMAfréttir, sem sérhæfir sig í umfjöllun um MMA, hefur tekið saman hvernig Gunnar Nelson og Rick Story eru líklegir til að hegða sér í búrinu í kvöld.
-Hér er listi yfir staði sem sýna bardagann-
Í umfjöllun MMAfrétta segir meðal annars að Gunnar sé sterkastur þegar bardaginn er farinn í gólfið, enda er hann einn af sterkustu gólfglímumönnum innan UFC.
Rick Story er á hinn bóginn mjög höggþungur, en einnig fær í ólympískri glímu. Í greiningu MMAfrétta segir að Gunnar þurfi að passa upp fótavinnuna, því Story eigi það til að þvinga menn að veggnum á búrinu, og reyni þar að ná undan þeim fótunum.
Greiningu MMAfrétta má nálgast í heild sinni hér.