Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, lenti í Reykjavík í gærkvöldi eftir langa fjarveru en þyrlan var staðsett í Noregi þar sem hún fór m.a. í umfangsmikla skoðun og var síðan máluð í nýjum lit þyrlna Landhelgisgæslunnar, að því er segir á vef Gæslunnar.
Eru nú tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar sem bera þann lit, TF-GNA og TF-SYN.