Í dag hefur verið skaplegt veður og hiti fyrir ofan frostmark en tekur að versna á Vestfjörðum í nótt með ofanhríð og hvössum norðanvindi.
Reiknað er með stórhríðarveðri og slæmu skyggni um norðvestanvert landið í fyrramálið og fljótlega einnig um mestallt Norðurland.
Veðurhorfur næsta sólarhringinn:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Rigning með köflum víða um land. Hiti 2 til 7 stig. Vaxandi norðanátt á Vestfjörðum í nótt og snjókoma. Norðan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) á morgun, en hægari vindur S- og A-lands fram eftir degi.
Snjókoma á norðanverðu landinu, en smáél sunnantil. Kólnandi veður á morgun, frost víða 0 til 5 stig þegar kemur fram á daginn, en frostlaust með suðurströndinni.
Færð á vegum:
Það eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði, Dynjandisheiði og á Hrafnseyrarheiði. Hálkublettir og éljagangur er á Hálfdáni. Einnig eru hálkublettir á Dettifossvegi og þæfingsfærð á Hellisheiði eystri.