Má heita Kamal en ekki Karma eða Clinton

Ætli Hillary og Bill hafi barist fyrir að fyrsta barnabarnið …
Ætli Hillary og Bill hafi barist fyrir að fyrsta barnabarnið yrði skírt Clinton Clinton?

Mannanafnanefnd úrskurðaði í 15 málum þann 3. október síðastliðinn og samþykkti nefndin kvenmannsnafnið Aríela og karlmannsnöfnin Mark, Kamal og Þóri. 

Nefndin taldi karlmannsnöfnin Duane, Hector, Sveinnóli, og Karma hinsvegar ekki í samræmi fyrir íslenskar málreglur. Ekki hlaut eiginnafnið Clinton heldur náð fyrir augum hennar en því var hafnað fyrr á árinu sem millinafni

Kvenmmansnöfnin Lady og Kaia þóttu heldur ekki falla að íslenskri tungu.

Millinöfnunum Huxland, Fletcher og Haugeland var hafnað en nefndin samþykkti beiðni um breytingu á millinafninu Robert í Hróbjartur.

Hér má sjá úrskurði mannanafnanefndar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert