Enginn skólaakstur vegna ófærðar

Siglufjörður.
Siglufjörður. mats.is

Skólaakstur fellur niður í Fjallabyggð í dag vegna óveðurs eða ófærðar, samkvæmt upplýsingum frá grunnskóla Fjallabyggðar til foreldra grunnskólabarna í sveitarfélaginu. 

Kennsla 5.-10. bekkjar fer fram í starfsstöðvum skólans samkvæmt óveðursskipulagi. Nemendur sem búsettir eru í Ólafsfirði mæta í grunnskólann við Tjarnarstíg og nemendur búsettir á Siglufirði mæta í grunnskólann við Norðurgötu ef foreldrar treysta þeim í skólann. 

Kennt verður samkvæmt óveðursskipulagi til kl. 12.00. Nemendur fara heim að loknum hádegismat.

Nemendur í 1.-4.bekk mæta í skólann eins og venjulega ef foreldrar treysta þeim í skólann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert