Kópavogsbær hefur ákveðið að endurskoða verklagsreglur varðandi mokstur gatna og söltun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá bæjarfélaginu.
„Stefna Kópavogsbæjar er að sinna snjómokstri og hálkueyðingu í bænum eins vel og auðið er hverju sinni. Því miður var ekki brugðist rétt við aðstæðum í bænum í nótt og lenti fjöldi bílstjóra í vandræðum vegna hálku á götum bæjarins í morgun.
Verklagsreglur í tengslum við mokstur gatna og söltun verða því yfirfarnar hjá Kópavogsbæ og er skoðun þeirra þegar hafin,“ segir í yfirlýsingu.