Kviknaði í báðum á sömu mínútunni

Eldur kom upp í tveimur bifreiðum á höfuðborgarsvæðinu nú á áttunda tímanum á nákvæmlega sömu mínútunni en engin tengsl eru á milli atvikanna.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins kviknaði í bifreið á Höfðabakka og var töluverður eldur í bifreiðinni. Engin slys urðu á fólki en ökumaður var einn í bifreiðinni þegar eldurinn kom upp. Búið er að slökkva eldinn en bifreiðin er töluvert skemmd.

Á sama tíma kviknaði í hjólabúnaði strætó á Sæbraut. Búið er að slökkva eldinn og urðu engin slys á fólki, að sögn varðstjóra í slökkviliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert