Meiri mengun í Landbroti

Í dag má búast við gasmengun austur og suðaustur af …
Í dag má búast við gasmengun austur og suðaustur af gosstöðvunum, frá Jökulsárlóni í suðri og norður á Stöðvarfjörð.

Mælingar á brennisteinsdíoxíði (SO2) með færanlegum mæli sýna aukinn styrk á Kirkjubæjarklaustri og í Landbroti og hafa mengunartoppar verið að mælast öðru hverju allt upp í 2600 µg/m3 nú eftir hádegi. íbúar voru hvattir til að kynna sér leiðbeiningar um áhrif á heilsufar og ráðleggingar um viðbrögð við SO2 frá eldgosum á vefsíðu Umhverfisstofnunar,  og á vefsíðu almannavarna um eldgosið.

Á Höfn í Hornafirði og nágrenni hefur mengunin farið minnkandi og mælist nú eftir hádegið milli 300 - 600 µg/m3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert