Vildu málefnalega umræðu um landsmótið

Frá landsmóti hestamanna.
Frá landsmóti hestamanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þð var sameiginleg ákvörðun fráfarandi stjórnar að segja af sér á landsþingi Landssambands hestamannafélaga um helgina í framhaldi af afsögn formannsins Haraldar Þórarinssonar.

Fráfarandi stjórn segist harma þá atburðarrás sem átt hefur sér stað undanfarna daga. Mikið hefur verið deilt um staðsetningu landsmóts hestamanna 2016. „Í ljósi stöðunnar þá töldum við þetta rétta ákvörðun,“ segir í tilkynningu frá fráfarandi stjórn.

Að beiðni formanna allra félaganna tóku fráfarandi stjórnarmenn að sér að starfa sem starfstjórn fram að framhaldi þingfundar þann 8.nóvember. Formaður starfsstjórnarinnar er Sigurður Ævarsson.

Svo segir:

„Við stöndum þétt við bak fráfarandi formanns LH, Haralds Þórarinssonar. Við höfum unnið með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og tekið ákvarðanir út frá því.

Ákveðið var að koma hreint fram og heiðarlega fyrir Landsþing og draga til baka viljayfirlýsingu við Gullhyl ehf. um að halda landsmót hestmanna árið 2016. Með því gerðum við ráð fyrir því að fá málefnalegar umræður um landsmót hestamanna og framtíð þeirra. Svo varð ekki.

Við töldum það réttast að draga viljayfirlýsingu við Gullhyl ehf. til baka og færa mótið á þann stað sem við teljum að mót á borð við landsmót þarfnist. Við viljum einnig árétta það að engin lög eða reglur hafa verið brotnar af okkar hálfu.

Umræðan sem orðið hefur innan sem utan hreyfingarinnar í kjölfar þessa, er okkur hestamönnum ekki til framdráttar.  Ósannindi og ærumeiðingar hafa átt sér stað í garð fyrrum formanns og stjórnarmanna og er það miður.

Við viljum ítreka það að við höfum unnið með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og vonum að svo verði einnig hjá þeim sem taka við.

Við óskum hestamönnum velfarnaðar í framtíðinni.“

Fréttir mbl.is:

Óvissa ríkir um landsmót hestamanna

Formaður LH sagði af sér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert