Rjúpnaveiðitímabilið hefst á föstudag og stendur í 12 daga þar sem veiða má þrjá daga í senn frá föstudegi til sunnudags, fjórar helgar í röð.
Síðasti veiðidagur er 16. nóvember. Ekki er víst að veðrið verði veiðimönnum hliðhollt alla dagana og mikilvægt að huga vel að því við undirbúning, segir í tilkynningu frá VÍS.
Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurvaktinni segir að um helgina megi vænta hæglætisvetrarveðurs víðast hvar á föstudag, með hægum vindi og smáéljum hér og þar. „Á laugardag hvessir hins vegar af austri og þá má reikna með snjókomu og skafrenningi til fjalla, en slyddu á láglendi. Einkum um sunnanvert landið. Norðan- og norðaustanlands er útlit fyrir heldur skárra veður. Á sunnudag dregur svo enn frekar til tíðinda og talsverðar líkur þá á norðankasti á landinu samfara djúpri lægð fyrir austan land.“
Ráðleggingar frá VÍS til veiðimanna:
- Mikilvægt er að veiðimenn búi sig vel, kynni sér í þaula færð og veður fyrir brottför og taki fullt mark á viðvörunum.
- Skoði gasspá og mælingar á loftgæðum. Ef gasmengun er á svæðinu getur þurft að endurskoða áætlanir og/eða hafa með sér viðeigandi búnað. Rakur klútur fyrir vitum getur hjálpað. Hafa þarf í huga að brennisteinsmengun getur verið missterk innan hvers svæðis. Til að mynda getur mengunin safnast fyrir í lautum og dölum. Þeir sem eru viðkvæmir í öndunarfærum þurfa sérstaklega að hafa varann á og ef tekin eru lyf við því ættu þau að vera meðferðis.
- Gera ferðaáætlun og skilja hana eftir hjá vandamönnum og á is. Þar þarf að koma fram hvert á að fara, hverjir eru með í för, með hvaða búnað og hvenær áætlað er að koma til baka.
- Klæðast fatnaði í nokkrum lögum og það ysta vel vind- og vatnshelt og í áberandi lit.
- Vera í vatnsheldum skóm með grófum sóla.
- Hafa áttavita, kort og fjarskiptatæki með í för. Gæta þess að allar rafhlöður séu vel hlaðnar og vera með 112-snjallsímaforritið í símanum.
- Vera á vel útbúnum bíl, á góðum vetrardekkjum og hreinsa þau með tjöruhreinsi áður en lagt er af stað.
- Hafa orkuríkt nesti og nægan vökva með í för og gott er að hafa hluta vökvans heitan.
- Ekki vera ein á ferð og gæta að öðrum veiðimönnum.
- Aldrei geyma byssuna hlaðna í bílnum og hafa öryggið á á göngu.
- Spenna ávallt bílbeltið og gæta þess að festa niður farangur.