Flestir fluttu til Danmerkur

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust …
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 450 manns á 3. ársfjórðungi. Ljósmynd/Norden.org

Landsmönnum fjölgaði um 1.130 á þriðja ársfjórðungi en alls eru 328.170 manns búsettir á Íslandi. Þar af eru 23.840 erlendir ríkisborgarar. Þeir Íslendingar sem fluttu brott fóru flestir til Danmerkur.

Í lok 3. ársfjórðungs 2014 bjuggu164.710 karlar og 163.460 konur hér á landi, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þar af bjuggu 210.660 manns á höfuðborgarsvæðinu.

Á 3. ársfjórðungi 2014 fæddust 1.200 börn, en 510 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 420 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 440 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 860 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 450 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.120 íslenskir ríkisborgarar af 1.460 alls. Af þeim 710 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 210 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (310), Noregi (220) og Svíþjóð (190), samtals 720 manns af 1.020. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 450 til landsins af alls 1.570 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 90 erlendir ríkisborgarar til landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert