„Fólk átti ekki von á þessu“

Lögreglumaður stýrir umferð við minnisvarðann þar sem hermaðurinn var skotinn …
Lögreglumaður stýrir umferð við minnisvarðann þar sem hermaðurinn var skotinn í dag. AFP

„Ég heyrði í lögreglusírenum og svo sá ég göturnar tæmast,“ segir Ólöf Sigvaldadóttir, sendiráðsfulltrúi í sendiráði Íslands í Ottawa í Kanada, í samtali við mbl.is. Skotum var hleypt af við þinghúsið í borginni í dag, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá skrifstofu Ólafar. 

Skot­um var einnig hleypt af við stríðsminn­is­varða í borg­inni og í Rideau versl­un­ar­miðstöðinni í dag. Einn bys­sumaður hef­ur verið skot­inn til bana, en talið er að ann­ar bys­sumaður gangi enn laus. Hermaður sem bys­sumaðurinn skaut við stríðsminn­is­varðann í Ottawa í dag hef­ur lát­ist af sár­um sín­um.

„Maður gerir sér ekki grein fyrir því hvort það sé ennþá einhver byssumaður í borginni en það virðist samt ekki vera hræðsla á meðal fólks. Lögreglan tók þetta strax föstum tökum svo fólki líður eins og það sé öruggt,“ segir Ólöf. Hún segir fólki þó hafa verið verulega brugðið þar sem Ottawa sé mjög friðsæl borg. „Þetta er eitthvað sem fólk er ekki vant. Þetta er mjög friðsæl og örugg borg og fólk er alveg svakalega kurteist og almennilegt.

Kemst ekki heim til sín í bráð

Ólöf segir mikinn viðbúnað vera í borginni, og miðbærinn sé enn lokaður. „Ríkisstarfsmenn hafa ekki fengið að fara heim úr miðbænum og voru beðnir að vera ekki nálægt gluggum í byggingum sínum. Svo voru hermenn beðnir að vera ekki á almannafæri í herbúningum svo þeir væru ekki skotmark.“

Sendiráðið er staðsett í stórri skrifstofubyggingu í miðbænum, en henni var lokað fyrr í dag eftir að skotárásirnar áttu sér stað. „Það komst enginn inn í bygginguna nema hafa skilríki,“ segir Ólöf, sem enn er föst í miðbænum og sér ekki fram á að komast heim til sín í bráð. „Það hafa myndast miklar umferðarteppur þar sem svo mörgum götum hefur verið lokað. En maður setur bara góðan geisladisk í og býr sig undir að þurfa að sitja lengi í bílnum,“ segir hún og hlær.

Byssumaður fór inn um starfsmannainngang

Ólöf segir mikið rætt um það hvort atvikið muni breyta því hvernig öryggiseftirliti er háttað í borginni. Hún segist þó vona að þetta breyti ekki aðgengi fólks að þinghúsinu því það sé mjög sjarmerandi. „Þetta er staður sem mikið af fólki og túristum fara á og það væri sorglegt að missa það,“ segir hún.

„Það er mikið lagt upp úr því að þingbyggingarnar séu opnar almenningi og fólk geti farið þarna inn og hlustað á fyrirspurnartíma í þinginu og séð þingmennina,“ segir Ólöf, en bætir því við að fólk komist ekki inn í húsið nema fara í öryggisleit. Byssumaðurinn fór þó inn í húsið um inngang sem er aðeins fyrir starfsfólk. „Það er ekki vitað nákvæmlega hvað hann gerði og hvernig hann komst inn,“ segir Ólöf. „Fólk átti ekki von á þessu og það gæti verið ástæða þess að hann komst svona langt.

Símtöl borist frá Íslendingum í borginni

Ólöf segist ekki vita um neinn Íslending sem var á svæðinu þegar skotunum var hleypt af í dag. Hún segir þó nokkur símtöl hafa borist frá íslenskum ferðamönnum í borginni, en enginn þeirra hafi verið á þeim stöðum sem skotunum var hleypt af.

Árás­in átti sér stað nokkr­um klukku­stund­um eft­ir að kanadísk stjórn­völd ákváðu að hækka viðbúnaðarstig vegna hættu á hryðju­verka­árás í land­inu, en það var gert eft­ir að ann­ar hermaður lést eft­ir að hafa orðið fyr­ir bif­reið. Sá sem ók bif­reiðinni er maður sem hafði tekið upp íslamstrú.

Ólöf Sigvaldadóttir, sendiráðsfulltrúi í sendiráði Íslands í Ottawa.
Ólöf Sigvaldadóttir, sendiráðsfulltrúi í sendiráði Íslands í Ottawa.
Lögregla stýrir umferð fólks úr miðbænum, en mikill viðbúnaður hefur …
Lögregla stýrir umferð fólks úr miðbænum, en mikill viðbúnaður hefur verið þar í dag. AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert