Læknaráð skorar á stjórnvöld

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Læknaráð Landspítala lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu lækninga á Landspítala í ályktum sem samþykkt var á almennum læknaráðsfundi 17. október. Skorar læknaráðið á stjórnvöld að ganga frá kjarasamningi við lækna sem fyrst.

„Mannekla er mikil á vissum sviðum og hafa margir sérfræðilæknar hætt störfum undanfarin ár, og tekið með sér sérþekkingu og hæfni sem erfitt er að bæta upp. Læknar Landspítalans hafa nú sinnt vinnu sinni án gildandi kjarasamnings í nær níu mánuði,“ segir m.a. í ályktuninni og er bent á að læknar hafi nú boðið til vinnustöðvunar vegna ósamkeppnishæfra kjara.

„Ljóst er að vinnustöðvun lækna við Landspítala veldur mikilli truflun á starfsemi hans með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir sjúklinga og kemur til með að valda óöryggi og seinkun á meðferð þeirra,“ segir einnig í ályktuninni.

Ná­ist ekki sam­komu­lag hefjast verkfallsaðgerðir lækna 27. októ­ber og standa til 11. des­em­ber. Þó verður verk­fall aðeins ákveðna daga og aðeins mun hluti lækna fara í verk­fall hverju sinni.

Vinna lækna í verk­falli verður í sam­ræmi við und­anþágulista sem fjár­málaráðuneytið birti í aug­lýs­ingu nr. 101/​​​​​2014 og er gert ráð fyr­ir að á þeim dög­um sem efnt er til verk­falla verði hverju sinni tryggð sam­bæri­leg mönn­un og tíðkast á frí­dög­um.

Sjá ekki til lands í læknadeilu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert