Nennti ekki að skafa

Þessi nennti ekki að skafa.
Þessi nennti ekki að skafa. Af Facebook-síðu lögreglunnar

Eitt af þeim verkefnum sem lögreglan þarf því miður að skipta sér af á hverjum vetri eru þeir ökumenn sem ekki nenna að skafa áður en þeir leggja af stað. Einn slíkur var stoppaður í gærmorgun, eins og myndin sýnir.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Varla þarf að fjölyrða um hættur þess að leggja af stað á bifreið þar sem útsýni ökumanns er jafnskert og þarna. Við leggjum því að ökumönnum að kaupa sér góða sköfu, sé hana ekki þegar að finna í bílnum eða geymslunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert