Bauð Íslandi að koma í heimsókn

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhannsson mbl.is/Ómar

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Elisabeth Aspaker sjávarútvegsráðherra Noregs áttu í gær tvíhliða fund í Puerto Varas í Síle, þar sem þau sækja fiskeldissýninguna AquaSur. 

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að á fundinum hafi verið rædd ýmis mál er varða sameiginlega hagsmuni þjóðanna. „Ráðherrarnir fóru yfir þá neikvæðu stöðu sem er í viðræðum um stýringu flestra þeirra stofna sem þjóðirnar eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta gagnvart en strandríkjafundir haustsins hafa ekki gengið sem skyldi. Þau voru sammála um mikilvægi þess að leita að lausnum og vera í áframhaldandi samskiptum sín á milli enda mikilvægt að leysa þann ágreining sem uppi er og koma í veg fyrir ofveiðar sem eru engum til framdráttar til lengri tíma litið. Norðmenn komu jafnframt á framfæri óánægju sinni vegna ákveðinna skilyrða sem er að finna í loðnusamningi þjóðanna.

Síðastliðið sumar kom Aspaker ásamt sendinefnd til Íslands til að kynna sér innviði íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins og fullnýtingu afurða. Kom hún á framfæri þökkum og ánægju með þá ferð. Aspaker bauð jafnframt Íslandi að koma í  heimsókn til að kynna sér helstu innviði stjórnunar í fiskeldi þar í landi, sem er öflug útflutningsgrein í Noregi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert