Fátt sem var í lagi

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann á tólfta tímanum í gærkvöldi en bifreið hans var ótryggð, án skráningarmerkja og skráningarskírteinis og þar að auki var ökumaður ekki með ökuréttindi.

Skráningarnúmer voru tekin af fimm bifreiðum vegna vanrækslu á að færa bifreiðirnar til skoðunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert