Fluttu inn búnað til að opna lása

Hluti búnaðarins.
Hluti búnaðarins. Ljósmynd/Tollurinn

Tollverðir á Seyðisfirði lögðu nýverið hald á búnað sem notaður er til að opna lása. Búnaðurinn fannst við leit í bifreið sem kom til landsins með Norrænu. Hann var á vegum þriggja manna sem sjálfir komu með flugi til landsins.

Þremenningarnir, sem allir eru erlendir ríkisborgarar, kváðust ætla að dvelja á Íslandi í mánuð. Eftir að búnaðurinn fannst breyttu þeir hins vegar áformum sínum skyndilega og hröðuðu för sinni úr landi með bílinn.

Búnaðurinn samanstóð af fjórum litlum kössum með opnunarlyklum og örfínum sexkanti auk fleiri muna sem taldir eru tengjast lásaopnun. Að auki var lagt hald á fjaðurhníf.

Tollverðir spurðu mennina um fyrirhugaða notkun á umræddum búnaði áður en þeir yfirgáfu landið. Skýringarnar voru metnar ótrúverðugar og er það mat Tollstjóra að líkur séu á því að búnaðinn hafi átt að nota í óheiðarlegum tilgangi og að aðgerðir tollgæslunnar hafi komið í veg fyrir þau áform.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert