Spyr um kostnað sérstaks saksóknara

Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði í dag fram fyrirspurn á Alþingi til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­onar, dóms­málaráðherra, um verktakakostnað embættis sérstaks saksóknara.

Í fyrirspurninni spyr Össur hver kostnaður embættis sérstaks saksóknara hafi verið vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka til 1. október 2014. Þá spyr hann til hvaða verkefna þjónustan hafi verið keypt, af hverjum og hve háar greiðslurnar hafi verið til hvers og eins.

Sigurður Guðni Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, gerði verktakakostnað sérstaks saksóknara að umtalsefni í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í gær. Þar benti hann á að vinna tveggja Dana við álitsgerðir fyrir embættið hefðu kostað það 2.500 danskar krónur á klukkustund. „Ekki ónýtt að vera verktakti hjá sérstökum,“ skrifaði hann. Sagði hann jafnframt að fróðlegt væri að fá upplýsingar um það fá embættinu hvað íslensku verktakar embættisins hafi á tímann.

Hér má sjá fyrirspurnin Össurar í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert