Styttist óðum í verkfall lækna

Boðaðar verkfallsaðgerðir hefjast á mánudag, hafi samningar ekki tekist fyrir …
Boðaðar verkfallsaðgerðir hefjast á mánudag, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. mbl.is/Golli

Næsti fundur í kjaradeilu Læknafélags Íslands við ríkið fer fram í húsnæði Ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. Síðast var fundað á þriðjudaginn og stóð sá fundur yfir í hálftíma. Boðaðar verkfallsaðgerðir hefjast nk. mánudag, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. 

„Við metum ástandið þannig að það sé ekki neitt að þokast í samkomulagsátt,“ sagði Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, eftir fundinn.

Boðaðar verkfallsaðgerðir eru aðeins í ákveðna daga og aðeins mun hluti lækna fara í verk­fall hverju sinni.

Vinna lækna í verk­falli verður í sam­ræmi við und­anþágulista sem fjár­málaráðuneytið birti í aug­lýs­ingu nr. 101/​​​​​2014 og er gert ráð fyr­ir að á þeim dög­um sem efnt er til verk­falla verði hverju sinni tryggð sam­bæri­leg mönn­un og tíðkast á frí­dög­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert