Tekinn með töluvert magn fíkniefna

Lögreglustöðin Akureyri
Lögreglustöðin Akureyri mbl.is/Gúna

Lögreglan á Akureyri stöðvaði för ökumanns í bænum í gærkvöldi vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fundust 10 grömm af amfetamíni og meira magn fíkniefna við húsleit í kjölfarið. 

Við húsleit á heimili mannsins fundust um 15 grömm af kannabis til viðbótar við þau efni sem höfðu fundist í bifreið hans, að sögn lögreglu á Akureyri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert